Allar þjónustur

Skýr stefna. Samræmd ásýnd.

Vörumerki &
hönnun.

Meira en lógó. Útlit og rödd sem passa við fyrirtækið.

Við hjálpum nýjum og starfandi fyrirtækjum að skýra hvernig þau vilja koma fram. Frá stakri lógóhönnun að heildstæðri ásýnd tengjum við saman útlit, skilaboð og efni sem er auðvelt að nota áfram.

Byggja vörumerkið

Byggjum grunninn.
Höldum samræminu.

Fyrir fyrirtæki sem eru að byrja, breyta um áherslur eða vilja að vefurinn, samfélagsmiðlarnir og prentefnið tali sama máli.

Lógó

Skýrt merki sem nýtist á þeim stöðum þar sem fyrirtækið birtist.

  • Hugmyndavinna og hönnunarleiðir
  • Litaútgáfa og svart-hvít útgáfa
  • Lokaafhending fyrir vef og prent

Lógó og sjónræn ásýnd

Sameiginlegur grunnur fyrir allt efni vörumerkisins.

  • Litapalletta og leturval
  • Útlit prófíla á samfélagsmiðlum
  • Einfaldar leiðbeiningar um notkun

Vörumerki og endurmótun

Stærra verkefni þegar bæði stefna og útfærsla þurfa að vinna saman.

  • Staðfærsla, áherslur og tónn í texta
  • Sjónrænt yfirbragð og efnissniðmát
  • Vörumerkjahandbók eftir umfangi

Hönnun sem nýtist
í daglegu starfi.

Við getum útfært ásýndina í samfélagsmiðlaefni, kynningar, umbúðir, skilti og annað prentefni. Hannaðar færslur eða stillur geta verið stök verkefni eða reglulegur hluti af samstarfi.

Gott að vita

Frá nýju útliti í eina heild

Þegar hönnun tengist nýrri vefsíðu, efnisframleiðslu og auglýsingum getum við haldið sama þræði í gegnum allt verkefnið. Við skilgreinum hönnunarleiðir, breytingaumferðir, afhendingarsnið og leiðbeiningar í tilboðinu.

Ljósmyndataka, prentframleiðsla og önnur viðbótarverk fylgja aðeins þegar þau eru hluti af umsömdu umfangi.

Hvernig á fólki
að líða með vörumerkið?

Segðu okkur frá fyrirtækinu, viðskiptavinunum og því sem þú vilt standa fyrir. Við finnum skýra stefnu og útfærum hana.

Byggja vörumerkið