Lendingarsíða
Ein markviss síða fyrir þjónustu, vöru eða herferð.
- Skýr framsetning og kall til aðgerða
- Hönnun fyrir tölvu og síma
- Tengiliðaupplýsingar, form og grunnmælingar
Frá fyrstu síðu að sérlausn
Vefur sem útskýrir, leiðbeinir og styður reksturinn.
Við setjum saman skýrt útlit, gott skipulag og virkni sem hentar fyrirtækinu þínu. Hvort sem þú þarft eina lendingarsíðu eða stærri vef hugsum við um hvað fólk kemur til að gera — og hvernig það tekur næsta skref í tölvu eða síma.
Ræða vefverkefniFyrir ný fyrirtæki, nýjar herferðir og fyrirtæki sem hafa vaxið upp úr núverandi vef. Við útfærum lausnina eftir efni, markmiðum og nauðsynlegri virkni.
Við getum tekið að okkur vefumsjón með tæknilegu eftirliti, yfirsýn yfir hýsingu og lén, grunnmælingum og afmörkuðum smábreytingum. Hún getur staðið ein og sér eða fylgt stærra samstarfi.
Gott að vita
Við förum yfir síðufjölda, efni, tengingar, hýsingu og viðhald áður en byrjað er. Vefverslanir, gáttir og sérkerfi fá eigið umfang og tilboð. Endurhönnun eða ný stór virkni er ekki hluti af almennri smábreytingaumsjón.
Lén, hýsing, áskriftir að utanaðkomandi kerfum og áframhaldandi þjónusta eru útfærð sérstaklega í tilboðinu.
Segðu okkur hver notar vefinn og hvað á að vera hægt að gera á honum. Við hjálpum þér að velja rétta stærð og lausn.