Allar þjónustur

Rétt skilaboð. Réttur markhópur.

Stafræn
markaðssetning.

Náðu til fólksins sem skiptir fyrirtækið þitt máli.

Við skipuleggjum og stýrum auglýsingum á Meta og Google. Markmiðið ræður ferðinni: að fleiri kynnist ykkur, heimsæki vefinn eða taki næsta skref. Efnið, markhóparnir og mælingarnar þurfa að styðja sama markmið.

Auka sýnileika

Frá fyrstu herferð
að reglulegri eftirfylgni.

Hentar bæði fyrirtækjum sem eru að byrja með greiddar auglýsingar og þeim sem vilja betra skipulag og skýrari yfirsýn yfir núverandi herferðir.

Meta eða Google

Við veljum miðil út frá viðskiptavinum þínum og því sem herferðin á að gera.

  • Uppsetning herferða og markhópa
  • Auglýsingatextar og uppsetning efnis
  • Vöktun, prófanir og hagræðing

Meta og Google saman

Samræmd skilaboð á samfélagsmiðlum og í leit, með sameiginlegum áherslum.

  • Skipulag beggja miðla
  • Skipting auglýsingafjár eftir markmiðum
  • Yfirferð niðurstaðna og næstu skref

Auglýsingar og efni

Þegar þig vantar líka myndbönd eða hannaðar færslur til að styðja herferðirnar.

  • Efnisplan og skilaboð herferðar
  • Myndbönd eða stillur eftir samningi
  • Aðlögun, birtingar og eftirfylgni

Skiljanlegar mælingar.
Gagnleg næstu skref.

Við ákveðum hvað á að mæla, förum yfir niðurstöður og notum þær til að bæta næstu birtingar. Smellir, áhorf og sala eru ekki það sama. Mælingar á fyrirspurnum eða kaupum ráðast af rétt uppsettum tengingum og þeim gögnum sem eru tiltæk.

Gott að vita

Auglýsingafé er alltaf sér

Við aðgreinum þjónustuna okkar frá fjárhæðinni sem fer til Meta eða Google. Fjöldi herferða, efnisframleiðsla, mælingauppsetning og skýrslugjöf eru skilgreind í tilboðinu. Dagleg umsjón samfélagsmiðla er sér þjónustuþáttur sem hægt er að bæta við.

Þarftu líka efnisplan, birtingar, svörun skilaboða eða markaðsráðgjöf? Við getum sameinað það í stærra samstarf.

Hvað á næsta herferð
að gera fyrir þig?

Segðu okkur frá markhópnum, vörunni og markmiðinu. Við hjálpum þér að velja miðla og útfæra herferðina.

Auka sýnileika