Eitt afmarkað verkefni
Fyrir fyrirtæki sem þurfa ákveðna afurð eða vilja byrja smátt.
- Myndband, myndataka eða herferð
- Vefsíða, hönnun eða kynningarefni
- Skýr afhending og umsamið umfang
Einn tengiliður. Heildstætt samstarf.
Þitt markaðsteymi. Í því umfangi sem þú þarft.
Engin tvö fyrirtæki þurfa nákvæmlega sömu markaðssetningu. Við tengjum saman þjónusturnar sem henta þér — hvort sem þú þarft að koma einu verkefni af stað eða fá teymi utan um markaðsstarfið til lengri tíma.
Setja saman lausnÞú getur fengið eina þjónustu, nokkrar sem vinna saman eða heildstæða markaðsumsjón. Umfang, ábyrgð og næstu skref eru ákveðin með þér.
Þegar hugmyndavinna, efni og birtingar eru skipulögð saman nýtist sama vinnan á fleiri stöðum. Þú færð samræmd skilaboð og einn tengilið, í stað þess að halda sjálfur utan um hvert verkefni hjá hverjum aðila.
Gott að vita
Við ákveðum hvaða miðlum við sinnum, efnisumfang, fundi, eftirfylgni og hvort svörun skilaboða eða vefumsjón fylgi. Samstarfið er ekki ótakmörkuð vinna: stærri viðbætur eru ræddar og samþykktar áður en þær hefjast.
Við getum unnið innanhúss eða kallað til sérhæfða samstarfsaðila. Þú heldur sama tengiliðnum hjá Geta. Tilboðið tekur mið af umfangi, reglulegu magni og lengd samstarfs.
Segðu okkur hvar þið standið og hvert þið viljið fara. Við leggjum til þjónustur sem vinna saman og skýra leið til að byrja.