Allar þjónustur

Stök verkefni og reglulegt samstarf

Myndbönd &
ljósmyndun.

Efni sem passar við miðilinn — og færir skilaboðin áfram.

Fyrir fyrirtæki sem vilja sýna fólkið, vörurnar og þjónustuna sína. Við gerum myndbönd fyrir TikTok, Reels og Shorts, tökum ljósmyndir og útfærum stærri auglýsingaframleiðslu eftir þörfum. Frá hugmynd og handriti að tökum og fullunnu efni.

Myndbandapakkar

Eitt myndband.
Eða næsti kafli.

Samfélagsmiðlamyndband þarf sterkt upphaf, skýr skilaboð og flæði sem heldur athyglinni. Við gerum efni sem fellur eðlilega að miðlinum og gefur svigrúm til að prófa ólíkar hugmyndir.

Stök þjónusta

Stakt
myndband

Fyrir eina hugmynd, nýja vöru eða fyrstu skrefin í myndbandagerð.

  • Hugmynd, handrit og einfaldar tökur
  • Klipping, textar, tónlist og einföld áhrif
  • Aðlögun að samfélagsmiðlum
  • Fullunnið myndband og umsamin yfirferð
Fá tilboð

Frá hugmynd að birtingu

Efni &
umsjón

Samstarf fyrir fyrirtæki sem vilja fá bæði efnið og aðstoð við að halda miðlunum gangandi.

  • Regluleg framleiðsla eftir efnisplani
  • Hugmyndavinna, tökur og eftirvinnsla
  • Efnisplan, skipulagning og birtingar
  • Eftirfylgni og yfirsýn í Geta Gáttinni
Fá tilboð
Umfang og viðbótarvinna

Magn, lengd myndbanda, tökur og breytingaumferðir eru ákveðin með þér. Ný hugmynd, ný tökulota eða stór stefnubreyting er viðbótarvinna. Umsýsla greiddra auglýsinga og auglýsingafé eru aðgreind frá efnisframleiðslu í tilboðinu.

Innan reglulegs samstarfs getum við líka gert einfalt aukaefni úr fyrirliggjandi myndefni eða samhliða tökum. Það er önnur þjónusta en ný fullframleidd auglýsing.

Ljósmyndapakkar

Rétta myndin.
Rétta umfangið.

Veldu það sem kemst næst þínum þörfum. Við útfærum myndatökuna saman og sendum þér tilboð áður en við byrjum.

Afmarkað verkefni

Markviss
myndataka

Þegar þig vantar ferskar myndir af einni vöru, þjónustu eða ákveðnum hluta starfseminnar.

  • Undirbúningur og skýr myndahugmynd
  • Myndataka með ákveðna áherslu
  • Val og vinnsla á myndum
  • Fullunnar skrár fyrir vef og miðla
Fá tilboð

Fleiri viðfangsefni

Heildstæð
myndataka

Þegar vörurnar, fólkið og staðurinn eiga að segja sömu söguna.

  • Tökuplan fyrir umfangsmeira verkefni
  • Fleiri viðfangsefni í sömu tökulotu
  • Heildstætt úrval af unnum myndum
  • Hægt að bæta myndböndum við
Fá tilboð

Fjöldi mynda, tökutími, afhending og notkunarréttur eru útfærð í tilboðinu. Þú veist hvað fylgir áður en myndatakan fer fram.

Sérframleiddar auglýsingar

Þegar hugmyndin
kallar á meira.

Stærri auglýsingaframleiðsla fær sitt eigið plan. Við setjum saman viðeigandi teymi og umfang fyrir kvikmyndalegt yfirbragð, drónatökur, sérlýsingu, leikara, fleiri tökustaði eða flóknari eftirvinnslu.

Framleiðsla eftir verkefninu

Þetta er ekki sama umfang og einfalt samfélagsmiðlamyndband. Hugmynd, mannafli, tökur, eftirvinnsla og afnot eru skilgreind í sértilboði áður en hafist er handa.

Ræðum framleiðsluna

Sniðið að þér

Þarf þetta að vera
öðruvísi hjá þér?

Segðu okkur hvað þig vantar. Við getum sameinað ljósmyndir og myndbönd eða byrjað á litlu verkefni og byggt áfram þaðan.

Tökum spjallið